Aðgangskóði: Þegar bókun hefur verið staðfest færðu sendan aðgangskóða í tölvupósti sem opnar hurðina á bókuðum tíma.
Tíminn þinn: Kóðinn virkar frá upphafi bókaðs tíma og aðgangur lokast þegar honum lýkur. Gefðu þér tíma til að ganga frá áður en tíminn rennur út.
Aðstoð: Ef eitthvað kemur upp á, sendu okkur tölvupóst á mulligangolf@mulligangolf.is og við bregðumst við eins fljótt og auðið er.
TrackMan: Nýr í TrackMan? Leiðbeiningar og myndbönd eru á TrackMan-síðunni okkar.